Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 20. júní 2020 16:41
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Leno lét Maupay heyra það er hann var borinn af velli
Mynd: Getty Images
Markvörðurinn Bernd Leno þurfti að fara meiddur af velli þegar Arsenal tapaði fyrir Brighton í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Neal Maupay, sóknarmaður Brighton, hoppaði upp í baráttu við Leno þegar Þjóðverjinn var búinn að handsama boltann.

Leno var ekki nægilega sáttur með Maupay og lét hann heyra það þegar verið var að bera hann af velli. Maupay skoraði svo sigurmark Brighton í leiknum.

„Þetta lítur ekki vel út, en við vitum ekki neitt enn," sagði Mikel Arteta, stjóri Arsenal, eftir leikinn.

Hérna má sjá myndband af því þegar Leno meiddist og hér að neðan má sjá það þegar hann var borinn af velli.

Bernd Leno confronting Neal Maupay from r/soccer




Athugasemdir
banner
banner
banner
banner