Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 20. júní 2020 14:35
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Segir Messi eins og einhvern sem myndi skjóta bekkjarfélagana
Lionel Messi.
Lionel Messi.
Mynd: Getty Images
Lionel Messi og félagar hans í Barcelona gerðu markalaust jafntefli við Sevilla í spænsku úrvalsdeildinni í gær. Ekki bestu úrslitin fyrir Barcelona, en ekki þau alverstu heldur.

Það er athyglisvert að rýna í umfjöllun spænska blaðsins ABC Fútbol um leikinn í gær.

Þar tekur Salvador Sostres, fjölmiðlamaðurinn sem skrifar greinina, fyrir nýja hárgreiðslu Lionel Messi, leikmanns Barcelona. Skrif hans um nýja hárgreiðslu Messi eru afar ósmekkleg.

„Ný hárgreiðsla gerir það að verkum að hann er eins og skiptinemi í Iowa (í Bandaríkjunum) sem endar á því að skjóta alla bekkjarfélaga sína," skrifar Sostres.

Eins og áður kemur fram, er þetta afar ósmekklegt. Skotárásir í skólum í Bandaríkjunum eru því miður alltof tíðar og ekkert til þess að vera að gera grín að.


Athugasemdir
banner
banner
banner