„Þetta var svolítið þægilegur leikur fannst mér. Síðasta leikur var baráttuleikur sem hefði getað dottið báðu megin en í dag skorum við snemma og spilum virkilega vel," sagði Sigurður Egill Lárusson, leikmaður Vals og einn af markaskorurunum eftir 0-3 útisigur á Gróttu í dag.
Lestu um leikinn: Grótta 0 - 3 Valur
„Við vorum búnir að fara vel yfir Gróttuna og fengum fullt af færum, í raun óheppnir að skora ekki fleiri."
Fyrstu stig Vals í mótinu, ágætis veganesti fyrir næstu leiki?
„Já heldur betur. Við eigum erfiðan leik úti gegn HK í næsta leik. Það eru bara þrjú stig þar."
Fyrir leikinn gegn HK mætir Valur liði SR í bikarnum. Er Siggi spenntur að mæta gömlu brýnunum þar?
„Ég er mjög spenntur. Ég spilaði með þeim [Hirti og Björgólfi] í Víkingi fyrir nokkrum árum síðan. Ég er virkilega spenntur að mæta þeim."
Sigurður skoraði ansi laglegt mark í leiknum í dag. „Ég vil bara skora mörk, alveg sama þó þau séu flott eða ekki. Þetta var í flottari kantinum. Hann var svolítið illa staðsettur í markinu, ég sá glufu og nýtti mér það."
Viðtalið í heild sinni má sjá hér að ofan.
Athugasemdir