„Þetta var náttúrulega erfitt eftir það sem kom fyrir í fyrri hálfleik, að missa mann af velli og fá á okkur tvö mörk," sagði Sveinn Þór Steingrímsson, þjálfari Magna, eftir 2-0 tap gegn ÍBV í Lengjudeildinni.
ÍBV er spáð efsta sæti deildarinnar, en Magna er spáð neðsta sæti deildarinnar.
ÍBV er spáð efsta sæti deildarinnar, en Magna er spáð neðsta sæti deildarinnar.
Lestu um leikinn: ÍBV 2 - 0 Magni
„Það var lélegt af okkar hálfu að láta þessi tvö mörk leka inn. Þetta var alltaf erfitt. Seinni hálfleikurinn var góð æfing í varnarfærslum, eigum við ekki bara að segja það?"
Sveinn segir að rauða spjaldið á Gauta Gautason hafi verið hárrétt, en viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir