"Gríðarleg vonbrigði að hafa ekki unnið leikinn" voru fyrstu viðbrögð Árna Freys Guðnasonar sem stýrði FH í kvöld í 1-0 tapi gegn ÍBV.
"Í fyrri hálfleik fengum við mörg færi og áttum að gera betur úr mörgum stöðum, skora kannski 1-2 mörk. Í seinni hálfleik þá lágu þær meira til baka og við vorum kannski svolítið óþolinmóð að fara fyrst í löngu sendingarnar í staðin fyrir að reyna aðeins að hreyfa þær. Þegar svona öflugt lið liggur vel til baka og lokar vel svæðunum þá er bara erfitt að opna þær og búa til færi." sagði Árni

Lestu um leikinn: FH 0 - 1 ÍBV
Andrea Mist Pálsdóttir var ekki með í kvöld en fyrir leik heyrðist að hún væri meidd aftan í læri. Árni veit ekki hvort hún verði lengi frá.
"Hún tognaði á æfingu á föstudaginn og æfði í gær og virtist vera í lagi en svo bara kom eitthvað smá bakslag svo við verðum bara að taka stöðuna á því."
Næsti leikur FH er gegn KR á föstudaginn. FH þarf að gera betur til að ná í 3 stig þar.
"Við þurfum bara að halda áfram í því sem við erum að gera að bæta okkar leik í öllum þáttum. Kannski að klára færin og vinna betur á síðasta þriðjung. Svo bara þetta gamla góða: Berjast og hafa trú á verkefninu." sagði Árni að lokum.
Athugasemdir