ÍA 2 - 3 Augnablik
1-0 Guðrún Karítas Sigurðardóttir ('4 )
1-1 Þórhildur Þórhallsdóttir ('52 )
2-1 Fríða Halldórsdóttir ('54 )
2-2 Þórhildur Þórhallsdóttir ('88 )
2-3 Þórhildur Þórhallsdóttir ('91 )
1-0 Guðrún Karítas Sigurðardóttir ('4 )
1-1 Þórhildur Þórhallsdóttir ('52 )
2-1 Fríða Halldórsdóttir ('54 )
2-2 Þórhildur Þórhallsdóttir ('88 )
2-3 Þórhildur Þórhallsdóttir ('91 )
Augnablik vann ÍA í hádramatískum leik á Akranesi í Lengjudeild kvenna í kvöld en sigurmarkið kom í uppbótartíma síðari hálfleiks.
Guðrún Karítas Sigurðardóttir kom ÍA yfir strax á 4. mínútu leiksins og stóðu leikar þannig í hálfleik. Þórhildur Þórhallsdóttir jafnaði á 52. mínútu en tveimur mínútum síðar komst ÍA aftur yfir og nú með marki frá Fríðu Halldórsdóttur.
Skagastelpur virtust vera að landa sigri í erfiðum leik en aðeins tvær mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma er Þórhildur jafnaði metin og þegar ein mínúta var komin fram yfir venjulegan leiktíma gerði hún sigurmarkið og fullkomnaði um leið þrennu sína.
Ótrúlegur sigur Augnabliks sem er með 7 stig í 6. sæti á meðan ÍA er með 6 stig í 7. sæti.
Athugasemdir