Lögreglukona var flutt á sjúkrahús með alvarlega höfuðáverka eftir að hafa fengið flösku í höfuðið frá stuðningsmanni Leeds í gær.
7000 stuðningsmenn Leeds söfnuðust saman í gær til að fagna sæti liðsins í ensku úrvalsdeildinni.
Hópsamkomur eru ekki leyfilegar á Englandi vegna kórónaveirunnar og lögregla reyndi að skarast í leikinn.

Örfáir stuðningsmenn í hópnum hentu flöskum í átt að lögreglunni og lögreglakona slasaðist alvarlega auk þess sem fleiri slösuðust minna.
Níu aðilar voru handteknir en lögregla náði að rýma svæðið í kringum miðnætti í gær.
Athugasemdir