Selfoss lagði Þór/KA 2-1 í Pepsi Max-deild kvenna í gær eftir að hafa verið 1-0 undir í leikhléi.
Selfyssingar spiluðu í vínrauðum búningum sínum á meðan Þór/KA var í svörtum búningum sínum. Anna María Friðgeirsdóttir, fyrirliði Selfyssinga, segir í viðtali við mbl.is að búningar liðanna hafi verið of líkir og það hafi truflað Selfyssinga í fyrri hálfleinkum.

„Við þorðum ekki alveg að senda boltann inn á miðjuna því við sáum ekki muninn á búningunum, það voru allir búningar svartir þegar maður horfði upp í sólina. Við við sáum bara muninn á stuttbuxunum," sagði Anna María en hún segir að sólin hafi ekki truflað jafn mikið í seinni hálflek.
„Þetta var betra í seinni hálfleik og þá keyrðum við bara yfir þær og spiluðum eins og við viljum spila. Spiluðum upp á okkar styrkleika, héldum boltanum og færðum hann vel. Við uppskárum tvö mörk og hefðum getað skorað fleiri."
Skýrslan: Hárblásarinn frá Alfreð í hálfleik skilaði sínu
— Jón Stefán Jónsson (@Jonsi82) July 19, 2020
Athugasemdir