Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mán 20. júlí 2020 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Van Aanholt þarf aðgerð - Fór úr axlarlið gegn Man Utd
Patrick van Aanholt.
Patrick van Aanholt.
Mynd: Getty Images
Patrick van Aanholt, vinstri bakvörður Crystal Palace, þarf að fara í aðgerð eftir að hafa farið úr axlarlið gegn Manchester United í síðustu viku.

Van Aanholt meiddist þegar Anthony Martial skoraði annað mark United í leiknum.

Hann var sárkvalinn og var borinn af velli. Nú er ljóst að hann spilar ekki meira á þessu tímabili, eins og gera mátti ráð fyrir, og gæti hann misst af byrjun næsta tímabils.

Það er nefnilega mjög stutt á milli tímabila í ljósi kórónuveirufaraldursins. Enska úrvalsdeildin klárast í lok þessa mánaðar og byrjar næsta tímabil í september.

Crystal Palace heimsækir Úlfana í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner