Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 20. júlí 2021 19:00
Brynjar Ingi Erluson
Van Dijk og Gomez líklega ekki með gegn Mainz á föstudag
Virgil Van Dijk og Joe Gomez
Virgil Van Dijk og Joe Gomez
Mynd: Getty Images
Virgil Van Dijk og Joe Gomez, varnarmenn Liverpool, voru ekki með liðinu í fyrstu tveimur leikjum undirbúningstímabilsins í dag er liðið splaði við Wacker Innsbruck og Stuttgart.

Báðir leikmenn meiddust illa í byrjun síðasta tímabils. Van Dijk meiddist eftir tæklingu Jordan Pickford í október og hefur ekki spilað síðan en er byrjaður að æfa á nýjan leik.

Gomez meiddist á æfingu með enska landsliðinu í nóvember og er hann einnig að koma til baka.

Þeir hafa æft með hópnum í Austurríki síðustu daga en voru ekki með í æfingaleikjunum í dag.

Jürgen Klopp, stjóri liðsins, býst ekki við þeim í eldlínunni gegn Mainz á föstudag.

„Það yrði afar óvænt ef þeir spiluðu á föstudag. Þeir hafa verið að gera mjög flókna hluti á æfingum en þeir verða að gera þetta skref fyrir skref. Ég býst ekki við þeim á föstudag," sagði Klopp.
Athugasemdir
banner
banner
banner