Juventus að landa Sancho - Barcelona greiðir laun Rashford - Wharton til Liverpool?
   sun 20. júlí 2025 15:10
Brynjar Ingi Erluson
Tekur á sig fimmtán prósent launalækkun
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Marcus Rashford er á leið til Spánar til að ganga frá félagaskiptum sínum í spænska félagið Barcelona frá Manchester United á láni út tímabilið.

Barcelona setti sig í samband við Man Utd fyrir helgi og gekk frá samkomulagi við félagið á nokkrum klukkutímum.

Englendingurinn talaði um þann draum að spila fyrir Barcelona fyrr í sumar og samþykkti að taka á sig fimmtán prósent launalækkun til að ganga í raðir félagsins.

Börsungar munu greiða allan launakostnað Rashford sem nemur um 14 milljónum evra á ári ásamt leikjatengdum bónusgreiðslum.

Félögin hafa skrifað undir öll gögn og nú er Rashford á leið til Barcelona í læknisskoðun áður en hann skrifar undir lánssamninginn. Fabrizio Romano segir frá þessu á X.
Athugasemdir
banner