Það eru fjórir leikir á dagskrá í íslenska boltanum í dag og eru þeir allir afar spennandi. Tveir verða sýndir beint á Stöð 2 Sport og Sport 4.
Breiðablik tekur á móti Val í toppslag Pepsi-deildar karla á sama tíma og Fjölnir mætir Víkingi R. í æsispennandi fallbaráttuslag.
Víkingur Ó. keppir þá við Þrótt R. í Inkasso-deild karla. Ólsarar þurfa sigur þar til að halda í við HK og ÍA á toppnum á meðan Þróttarar geta jafnað Ólsara á stigum með sigri.
Að lokum er toppslagur í Inkasso-deild kvenna þar sem Fylkir tekur á móti Keflavík. Þetta eru langbestu lið Inkasso-deildarinnar sem mætast, enda aðeins búin að tapa einum leik í sumar og með góða forystu á toppinum.
Pepsi-deild karla
18:00 Fjölnir-Víkingur R. (Extra völlurinn)
18:00 Breiðablik-Valur (Stöð 2 Sport - Kópavogsvöllur)
Inkasso-deild karla
18:00 Víkingur Ó.-Þróttur R. (Stöð 2 Sport 4 - Ólafsvíkurvöllur)
Inkasso-deild kvenna
19:15 Fylkir-Keflavík (Floridana völlurinn)
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir