Borussia Dortmund mætir til leiks í þýska bikarnum í dag og á útileik við Greuther Fürth sem rétt bjargaði sér frá falli úr B-deildinni í maí.
Þýski bikarinn er gífurlega vinsæll og frægur fyrir gæði smærri liðanna, ekki ólíkt og á Englandi.
Eintracht Frankfurt, sem varð bikarmeistari eftir sigur í úrslitaleiknum gegn Bayern í vor, datt úr leik eftir óvænt tap gegn D-deildarliði Ulm á laugardaginn.
Stuttgart datt þá óvænt úr leik gegn Hansa Rostock og tókst SC Weiche að senda sögufrægt lið Bochum heim til sín.
Leikir dagsins:
16:30 Braunschweig - Hertha Berlin
16:30 Energie Cottbus - Freiburg
16:30 Paderborn - Ingolstadt
18:45 Greuther Furth - Dortmund
Athugasemdir