Sky Sport Italia er meðal ítalskra fjölmiðla sem segja að Franck Ribery hafi samþykkt að ganga í raðir Fiorentina.
Samningur þessa 36 ára gamla Frakka við Bayern München rann út í sumar.
Sagt er að Ribery muni gera tveggja ára samning við Fiorentina eftir að hafa gengist undir læknisskoðun í þessari viku.
Samningur þessa 36 ára gamla Frakka við Bayern München rann út í sumar.
Sagt er að Ribery muni gera tveggja ára samning við Fiorentina eftir að hafa gengist undir læknisskoðun í þessari viku.
La Repubblica og fleiri fjölmiðlar halda því fram að viðræður séu á lokastigi en enn eigi eftir að semja um einhver atriði.
Fiorentina hafnaði í 16. sæti ítölsku A-deildarinnar á síðasta tímabili.
Athugasemdir