Hallgrímur Mar Steingrímsson er ekki að eiga sitt besta tímabil á ferlinum - langt því frá.
Fyrir tímabil var rætt um hann sem einn af betri leikmönnum deildarinnar.
Hallgrímur er búinn að spila níu leiki í Pepsi Max-deildinni í sumar, skora núll mörk og leggja upp tvö - bæði úr hornspyrnum.
Knattspyrnuþjálfarinn Arnar Hallsson minntist á Hallgrím þegar hann leikgreindi leik Vals og KA í Pepsi Max-deildinni fyrir Fótbolta.net.
„Sóknarlega virðist Hallgrími ætlað að vera nokkuð frjáls og skapa færi með knattraki líkt og undanfarin ár. En nú virkar Hallgrímur nokkuð þungur, er ekki jafn afgerandi og undanfarin ár enda ekki skorað og bara lagt upp tvö mörk. Þau komu bæði eftir hornspyrnu," sagði Arnar.
Smelltu hér til að skoða leikgreiningu Arnars
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir