Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 20. september 2018 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Dembele búinn að gera betur en á síðustu leiktíð
Mynd: Getty Images
Ousmane Dembele hefur farið vel af stað með Barcelona á þessu tímabili.

Dembele var keyptur til Barcelona í fyrrasumar eftir að hafa verið frábær með Borussia Dortmund í það eina tímabil sem hann var þar. Kaupverðið fyrir Demeble er sagt vera 105 milljónir evra með möguleika á hækkun upp í 145 milljónir evra.

Dembele náði sér ekki almennilega á strik á fyrsta tímabili sínu í Katalóníu. Hann spilaði í heildina 23 leiki og spiluðu meiðsli stóra rullu í því. En í þessum 23 leikjum skoraði hann aðeins fjögur mörk.

Dembele er búinn að gera gott betur á þessu tímabili, í aðeins sex leikjum hefur hann skorað fimm mörk - meira en á öllu síðasta tímabili.

Hann kemur vel undan sumrinu en Dembele var á skotskónum í Meistaradeildinni á þriðjudag. Hann skoraði annað mark Barcelona í 4-0 sigri á PSV Eindhoven.

Markið var flott en það má sjá með því að smella hér



Athugasemdir
banner
banner
banner