Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 20. september 2018 11:00
Magnús Már Einarsson
Firmino æfir með gleraugu eins og Edgar Davids
Edgar Davids í leik með gleraugun.
Edgar Davids í leik með gleraugun.
Mynd: Getty Images
Roberto Firmino, framherji Liverpool, æfði með hlífðargleraugu á æfingu liðsins í dag.

Firmino meiddist á auga gegn Tottenham um síðustu helgi en hann spilaði tuttugu mínútur og skoraði sigurmarkið gegn PSG í Meistaradeildinni í fyrrakvöld.

„Edgar Davids er mættur aftur," sagði Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, léttur í bragði þegar Firmino mætti með gleraugun á æfingu í dag.

Hollenski miðjumaðurinn Edgar Davids spilaði með gleraugu á ferli sínum þar sem hann er með augnsjúkdóm.

Davids vakti talsverða athygli fyrir gleraugun en hann spilaði með Tottenham, Juventus og fleiri liðum á ferlinum sem og með hollenska landsliðinu.

Athugasemdir
banner