Senad Lulic kom inn af bekknum og tók sér stöðu á miðjunni hjá Lazio er ítalska félagið rétt marði Apollon Limassol í fyrstu umferð riðlakeppni Evrópudeildarinnar fyrr í kvöld.
Lulic verður seint þekktur fyrir mikla markaskorun en Bosníumaðurinn fékk kjörið tækifæri til að skora þriðja mark sitt fyrir Lazio í Evrópukeppni undir lok leiksins.
Hann slapp í gegn er gestirnir reyndu að jafna undir lokin og náði að leika á markvörð Kýpverjanna. Hann stóð þá með boltann fyrir framan galopið mark, með einn varnarmann fyrir framan sig sem stóð upp við nærstöngina. Skot Lulic var þó ekki betra en það að varnarmaðurinn náði að stöðva það og gestirnir fengu annað tækifæri til að blása til sóknar og reyna að jafna leikinn.
Lulic getur ekki notað þreytu sem afsökun þar sem hann var aðeins búinn að vera rúman stundarfjórðung á vellinum þegar klúðrið ótrúlega átti sér stað. Sjón er sögu ríkari.
😤 😤 😤 😤
— SiriusXM FC 157 ⚽️📻 (@SiriusXMFC) September 20, 2018
This will haunt Senad Lulić forever! #UEL
What is the worst miss you remember? pic.twitter.com/eKhyJjU4L6
Athugasemdir