Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 20. september 2020 14:29
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir Southampton og Tottenham: Son fær 10
Mynd: Getty Images
Tottenham skoraði fimm í stórsigri gegn Southampton í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.

Sky Sports gaf leikmönnum ekki einkunnir að þessu sinni svo við notumst þess í stað við einkunnagjöf Independent.

Heung-min Son var óumdeildur maður leiksins þar sem hann skoraði fernu en Harry Kane var næstbestur. Kane lagði öll mörk Son upp og skoraði svo sjálfur.

Davinson Sanchez og Tanguy Ndombele voru verstir í liði Tottenham með 5 í einkunn.

Danny Ings var langbestur í liði Southampton. Hann skoraði bæði mörk liðsins og fékk 9 í einkunn. Alex McCarthy, Jan Bednarek, Jack Stephens og Ryan Bertrand voru allir fjarkaðir í liði heimamanna, ásamt Shane Long sem kom inn af bekknum.

Southampton: McCarthy (4), Walker-Peters (5), Bednarek (4), Stephens (4), Bertrand (4), Armstrong (6), Romeu (7), Ward-Prowse (6), Djenepo (7), Adams (7), Ings (9)
Varamenn: Smallbone (5), Tella (5), Long (4)

Tottenham: Lloris (8), Doherty (7), Dier (6), Sanchez (5), Davies (6), Hojbjerg (6), Winks (7), Lucas (6), Ndombele (5), Son (10), Kane (9)
Varamenn: Lo Celso (7), Lamela (6)
Athugasemdir
banner
banner
banner