Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 20. september 2022 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Vil frekar ná þessu 2. sæti en gullskónum"
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjarnan vann gríðarlega mikilvægan sigur á Þrótti í Bestu deild kvenna í gær en Garðabæjar liðið er tveimur stigum frá Breiðablik sem situr í öðru sæti þegar tvær umferðir eru eftir.


Betsy Doon Hassett kom Stjörnunni yfir og Gyða Kristín Gunnarsdóttir gulltryggði sigurinn með marki úr vítaspyrnu.

Markahrókurinn Jasmín Erla Ingadóttir fiskaði vítið en hún var spurð í viðtali við Fótbolta.net eftir leikinn hvort hún stefndi ekki á gullskóinn og ætlaði að taka vítið.

„Vil frekar ná þessu 2. sæti frekar en gullskónum," sagði Jasmín.

Jasmín er með 10 mörk á toppnum eins og staðan er núna en Gyða er komin í annað sætið með 9 mörk eftir markið í gær. Brenna Lovera leikmaður Selfoss og Sandra María Jessen leikmaður Þór/KA fylgja þar á eftir með 8 mörk hvor.


Jasmín Erla: Sex stig í pottinum og við ætlum að taka þau öll
Athugasemdir
banner
banner
banner