Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 20. október 2018 15:35
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið Huddersfield og Liverpool: Klopp gerir breytingar
Mane er fjarri góðu gamni eftir að hafa puttabrotnað í landsliðsverkefni.
Mane er fjarri góðu gamni eftir að hafa puttabrotnað í landsliðsverkefni.
Mynd: Getty Images
Vinirnir David Wagner og Jurgen Klopp mætast með lið sín, Huddersfield og Liverpool í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.

Leikurinn hefst klukkan 16:30.

Huddersfield er aðeins með þrjú stig fyrir leikinn en Liverpool er taplaust, með 20 stig í þriðja sæti deildarinnar.

Liverpool kom ekki sérlega vel út úr landsleikjahléinu, nokkrir leikmenn komu meiddir til baka. Virgil van Dijk, Mohamed Salah, Sadio Mane og Naby Keita komu meiddir til baka, en Van Dijk og Salah eru með í dag. Keita og Mane eru ekki með.

James Milner er klár í slaginn eftir að hafa meiðst gegn Manchester City og þá byrjar Adam Lallana. Daniel Sturridge og Xherdan Shaqiri byrja þennan leik líka. Roberto Firmino er á bekknum.

Hér að neðan eru byrjunarliðin.

Huddersfield: Lossl, Durm, Zanka, Schindler, Lowe, Hogg, Billing, Mooy, Pritchard, Hadergjonaj, Depoitre.
(Varamenn: Hamer, Bacuna, Diakhaby, Van La Parra, Mbenza, Mounie, Stankovic)

Liverpool: Alisson, Gomez, Van Dijk, Lovren, Robertson, Milner, Henderson, Lallana, Shaqiri, Sturridge, Salah.
(Varamenn: Mignolet, Fabinho, Wijnaldum, Firmino, Origi, Matip, Alexander-Arnold)
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
2 Arsenal 32 22 5 5 75 26 +49 71
3 Liverpool 32 21 8 3 72 31 +41 71
4 Aston Villa 33 19 6 8 68 49 +19 63
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Newcastle 32 15 5 12 69 52 +17 50
7 Man Utd 32 15 5 12 47 48 -1 50
8 West Ham 33 13 9 11 52 58 -6 48
9 Chelsea 31 13 8 10 61 52 +9 47
10 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
11 Wolves 32 12 7 13 46 51 -5 43
12 Fulham 33 12 6 15 49 51 -2 42
13 Bournemouth 32 11 9 12 47 57 -10 42
14 Crystal Palace 32 8 9 15 37 54 -17 33
15 Brentford 33 8 8 17 47 58 -11 32
16 Everton 32 9 8 15 32 48 -16 27
17 Nott. Forest 33 7 9 17 42 58 -16 26
18 Luton 33 6 7 20 46 70 -24 25
19 Burnley 33 4 8 21 33 68 -35 20
20 Sheffield Utd 32 3 7 22 30 84 -54 16
Athugasemdir
banner
banner
banner