lau 20. október 2018 16:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Championship: Birkir byrjaði hjá nýjum stjóra
Birkir Bjarnason.
Birkir Bjarnason.
Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir
Það eru tíu leikir búnir í Championship-deildinni í dag og einn leikur eftir. Derby mætir Sheffield United klukkan 16:30.

Birkir Bjarnason var í byrjunarliði Aston Villa gegn Swansea. Þetta var fyrsti leikurinn hjá nýjum stjóra Aston Villa, Dean Smith, en hann tók við liðinu af Steve Bruce. John Terry er aðstoðarstjóri Smith.

Birkir lék allan leikinn á miðjunni hjá Villa sem uppskar 1-0 sigur. Tammy Abraham, lánsmaður frá Chelsea, skoraði eina mark leiksins á áttundu mínútu.

Villa er í 13. sæti deildarinnar en Swansea situr í 15. sætinu.

Leeds, sem er að berjast á toppnum, tapaði 2-1 gegn Blackburn í hádeginu en annað toppbaráttulið, West Brom, tapaði líka. West Brom tapaði 1-0 gegn Wigan á útivelli.

Þá tapaði Stoke gegn Birmingham. Stoke er í 17. sæti með 16 stig. Hér að neðan eru öll úrslit og markaskorarar í þeim leikjum sem búnir eru á þessum laugardegi.

Jón Daði Böðvarsson gat ekki spilað með Reading vegna meiðsla. Reading vann Milwall og er í 19. sæti.

Blackburn 2 - 1 Leeds
1-0 Danny Graham ('2 )
1-1 Mateusz Klich ('45 )
2-1 Darragh Lenihan ('70 )

Aston Villa 1 - 0 Swansea
1-0 Tammy Abraham ('8 )

Brentford 0 - 1 Bristol City
0-1 Niclas Eliasson ('90 )
Rautt spjald:Christopher Mepham, Brentford ('58)

Hull City 1 - 1 Preston NE
1-0 Jarrod Bowen ('85 , víti)
1-1 Louis Moult ('90 )

Ipswich Town 0 - 2 QPR
0-1 Luke Freeman ('14 )
0-2 Tomer Hemed ('45 , víti)

Nott. Forest 1 - 2 Norwich
1-0 Lewis Grabban ('5 )
1-1 Timm Klose ('61 )
1-2 Timm Klose ('84 )

Reading 3 - 1 Millwall
1-0 Yakou Meite ('28 )
1-1 Murray Wallace ('34 )
2-1 Sam Baldock ('45 , víti)
3-1 Yakou Meite ('87 )

Rotherham 1 - 1 Bolton
1-0 Will Vaulks ('57 )
1-1 Christian Doidge ('85 )

Stoke City 0 - 1 Birmingham
0-1 Che Adams ('82 )

Wigan 1 - 0 West Brom
1-0 Josh Windass ('74 )
Rautt spjald:Jake Livermore, West Brom ('84)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner