Manchester United gerði 2-2 jafntefli við Chelsea í fyrsta leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildarinnar.
United komst í 2-1 með mörkum frá Anthony Martial eftir að hafa lent 1-0 undir í fyrri hálfleik en Chelsea jafnaði þegar nokkrar sekúndur voru eftir.
Þegar Chelsea jafnaði fór starfsmaður félagsins og fagnaði fyrir framan varamannabekkinn hjá Man Utd.
Jose Mourinho, stjóri Man Utd, var allt annað en sáttur með það og trompaðist.
Smelltu hér til að sjá þetta.
Það ætlaði allt að sjóða upp úr á lokamínútunum og voru komnar nokkrar mínútur yfir sex mínútna uppbótartímann þegar Mike Dean flautaði leikinn loksins af. Leikurinn endaði eins og áður segir 2-2 eftir mikla spennu á lokamínútunum.
Pathetic behaviour by that Chelsea coach & totally disrespectful to a man who won the club so many trophies.
— Piers Morgan (@piersmorgan) October 20, 2018
No wonder Mourinho went nuts. pic.twitter.com/8jJSOX8BDk
Athugasemdir