Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 20. október 2018 13:47
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sungu „Fuck off Mourinho" - Hann svaraði fullum hálsi
Mourinho á bekknum í dag.
Mourinho á bekknum í dag.
Mynd: Getty Images
Það var mikil dramatík á lokamínútunum þegar Chelsea og Manchester United gerðu 2-2 jafntefli í ensku úrvalsdeildinni í hádeginu. Chelsea jafnaði á lokasekúndum leiksins.

Sjá einnig:
Myndband: Mourinho trompaðist eftir mark Chelsea

Jose Mourinho, stjóri United, er fyrrverandi stjóri Chelsea en eftir leik sungu stuðningsmenn Chelsea illa um sinn sigursælasta stjóra í sögunni.

Þeir sögðu Portúgalanum að fara til fjandans. „Farðu til fjandans Mourinho," sungu þeir.

Mourinho ákvað að svara þeim með því að lyfta upp þremur fingrum. Einn fingur fyrir hvern úrvalsdeildartitil sem hann vann með félaginu.

Sjáðu mynd af þessu hér að neðan.



Athugasemdir
banner
banner