Luis Suarez skoraði eitt af þremur mörkum Barcelona í sigri á Eibar í gær.
Markið kom Suarez upp í fjórða sætið yfir þá leikmenn sem hafa skorað flest mörk fyrir Barcelona.
Suarez er alls kominn með 184 mörk fyrir Katalóníufélagið en hann deilir fjórða sætinu með Josep Samitier. Suarez er á sínu sjötta tímabili hjá Barcelona.

Ungverjinn Laszló Kubala er í þriðja sæti listans með 194 mörk og Spánverjinn César er í öðru sæti með 232 mörk.
Ótrúlegt en satt þá er það Lionel Messi sem er markahæstur í sögu félagsins. Messi hefur ekki skorað nema 605 mörk fyrir Barcelona í öllum keppnum.
Suarez þyrfti að spila í 12 tímabil í viðbót og skora jafn mikið og hann hefur gert til þessa að meðaltali á ári, án þess að Messi myndi skora fleiri mörk á meðan, til að ná Argrentínumanninum frábæra.
Athugasemdir