Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 20. október 2022 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Potter: Zakaria er mikilvægur partur af hópnum
Mynd: Getty Images
Chukwuemeka hefur komið við sögu í tveimur leikjum á tímabilinu. Hann fékk síðasta hálftímann gegn Brentford.
Chukwuemeka hefur komið við sögu í tveimur leikjum á tímabilinu. Hann fékk síðasta hálftímann gegn Brentford.
Mynd: Chelsea

Chelsea hefur farið vel af stað undir stjórn Graham Potter og er búið að vinna fimm leiki og gera tvö jafntefli. Liðið gerði markalaust jafntefli við Brentford í gærkvöldi og var Denis Zakaria ónotaður varamaður.


Zakaria var fenginn á lánssamningi frá Juventus á gluggadegi sumargluggans en hefur ekki enn fengið að spreyta sig með Chelsea. Thomas Tuchel vildi fá hann en var svo rekinn aðeins viku síðar.

Potter var spurður hvort Chelsea hyggðist skila Zakaria til Juve í vetrarglugganum.

„Það hefur ekki verið tekin nein ákvörðun varðandi Denis. Hann er fagmaður og hefur verið að æfa mjög vel og er tilbúinn til að hjálpa liðinu þegar þess þarf," sagði Potter.

„Við erum ekki byrjaðir að ræða framtíðina hans. Eins og staðan er í dag þá er hann mikilvægur partur af hópnum. Hann hefur verið þolinmóður og mun fá tækifærið sitt bráðlega."

Hinn efnilegi Carney Chukwuemeka kom inn af bekknum í jafnteflinu gegn Brentford og var Potter ánægður með táninginn.

„Hann er stór og kröftugur strákur sem getur hlaupið mikið, ég er mjög hrifinn af honum. Þetta er gríðarlega efnilegur leikmaður með spennandi hæfileika."

Chelsea borgaði um 20 milljónir punda til að kaupa Chukwuemeka af Aston Villa í sumar.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner