Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 20. nóvember 2021 11:42
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Byrjunarlið Leicester og Chelsea: Werner á bekknum
Mynd: Getty Images
Fyrsti leikur dagsins er viðureign Leicester og Chelsea. Byrjunarliðin eru klár.

Þýski framherjinn Timo Werner er kominn aftur í hópinn hjá Chelsea eftir að hafa verið að kljást við meiðsli að undanförnu. Hann er hinsvegar ekki klár í að byrja.

Thomas Tuchel gerir tvær breytingar á sínu liði frá 1-1 jafntefli gegn Burnley. Chalobah kemur inn í miðvörðinn fyrir Andreas Christensen og Mason Mount er búinn að jafna sig eftir aðgerð á tönn. Hann kemur inn fyrir Ross Barkley.

Það eru tvær breytingar á liði Leicester frá jafntefli gegn Leeds í síðustu umferð. Marc Albrighton kemur inn í liðið fyrir Youri Tielemans sem er meiddur. Daniel Amartey kemur inn í liðið fyrir Pereira.

Leicester: Schmeichel, Castagne, Soyuncu, Evans, Amartey, Albrighton, Ndidi, Soumare, Barnes, Vardy, Lookman

Chelsea: Mendy, Chilwell, Rudiger, Silva, Chalobah, James, Jorginho, Kante, Mount, Havertz, Hudson-Odoi
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner