Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 20. nóvember 2021 06:00
Victor Pálsson
Ekki viss af hverju Bandaríkin hafa ekki not fyrir hann
Mynd: Getty Images
Julian Green, fyrrum leikmaður Bayern Munchen, er ekki viss af hverju hann fær ekki tækifæri með bandaríska landsliðinu en hann er ekki inni í myndinni hjá Gregg Berhalter.

Green er 26 ára gamall vængmaður en hann var afar efnilegur á sínum tíma og lék með Bayern frá 2013 til 2016.

Í dag leikur Green með Greuther Furth í Þýskalandi en hann hefur ekki spilað landsleik í þrjú ár sem er ansi langur tími.

Margir spyrja sig af hverju Green fær ekki tækifæri undir Berhalter en hann segist sjálfur ekki vita ástæðuna.

„Ég ræði af og til við Berhalter. Fyrir tímabilið var Gullkeppnin í gangi en ég gat ekki spilað þar vegna undirbúningstímabilsins," sagði Green.

„Það er erfitt að segja af hverju ég er ekki valinn, ég held að ég geti hjálpað liðinu og er laus. Í lok dags þá er það þjálfarinn sem tekur þessar ákvarðanir og ég get aðeins gert mitt besta og bætt minn leik. Ég verð að virða hans ákvörðun."
Athugasemdir
banner