Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 20. nóvember 2021 15:56
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Er tími Solskjær runninn út? - Stuðningsmenn Watford ögra
Mynd: EPA
Watford er tveimur mörkum yfir gegn Manchester United í hálfleik. Ole Gunnar Solskjær stjóri United hefur verið undir mikilli pressu að undanförnu.

United hefur tapað illa gegn Liverpool og City meðal annars. Stuðningsmenn annara liða hafa gert mikið grín af Solskjær. Stuðningsmenn United byrjuðu á því að syngja „Ole's at the wheel" eða „Ole er við stýrið" og nú hafa stuðningsmenn annara liða byrjað að syngja þetta í kaldhæðni.

Stuðningsmenn Watford hafa sungið þetta á leiknum núna og eru farnir að syngja „You're getting sacked in the morning" eða „Þú verður rekinn í fyrramálið."

Brendan Rodgers stjóri Leicester hefur verið orðaður við United en Leicester er í 13. sæti og tapaði illa gegn Chelsea fyrr í dag.




Athugasemdir
banner
banner
banner
banner