Chelsea er að yfirspila Leicester í fyrsta leik umferðarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Staðan er 2-0 eftir hálftíma leik.
Antonio Rudiger skoraði fyrsta markið en Ngolo Kante skoraði annað markið.
Ekki mestu markaskorararnir en Rudiger hefur skorað átta mörk í deildinni fyrir Chelsea síðan hann gekk til liðsins árið 2017.
Það vekur athygli að fjögur af þessum átta mörkum hafa komið gegn Leicester, eina liðið sem hann hefur skorað oftar en einu sinni gegn.
50% - Exactly 50% of Antonio Rüdiger's eight Premier League goals have come against Leicester (4), the only Premier League side the German has netted more than once against in the competition. Foxy. pic.twitter.com/vBnClE5X4V
— OptaJoe (@OptaJoe) November 20, 2021
Athugasemdir