Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 20. nóvember 2021 13:50
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Smith mætir Southampton í annað sinn á tveimur vikum
Mynd: Getty Images
Dean Smith stýrir Norwich í sínum fyrsta leik gegn Southampton í dag. Hann tók við liðinu á dögunum af Daniel Farke.

Smith var rekinn frá Aston Villa eftir að liðið hafði tapað fimm leikjum í röð.

Það vekur athygli að hann var rekinn einmitt eftir tap gegn Southampton. Þetta er því í fyrsta sinn sem þjálfari stýrir tveimur mismunandi liðum gegn sama liðinu í tvo leiki í röð.

Leikurinn hefst kl 15 og á sama tíma spilar hans gamla félag Aston Villa gegn Brighton en það verður fyrsti leikur Steven Gerrard í stjórastól Villa.
Athugasemdir
banner