Í kvöld keppir Michael van Gerwen, einn besti píluspilari heims, í átta manna úrslitum á Grand Slam of Darts sem fram fer í Wolverhampton.
Hann fékk óvæntan æfingafélaga á hóteli sínu í Wolverhampton í gærkvöldi, Declan Rice miðjumann West Ham og enska landsliðsins.
West Ham heimsækir Wolverhampton Wanderers í ensku úrvalsdeildinni í dag og gisti liðið á sama hóteli og Van Gerwen.

Fyrr á þessu ári sagði Rice frá því í viðtali hvernig píla hefði orðið eitt hans helsta áhugamál. Rice notar frítíma sinn í að spila pílu og í viðtalinu opinberaði hann meðal annars að Van Gerwen væri einn af sínum uppáhalds píluspilurum.
Það fylgir ekki sögunni hvernig Rice gekk gegn Van Gerwen en Hollendingurinn birti mynd af þeim félögum á Instagram. „Fín æfing og kaffibolli að baki með Declan Rice, haha" skrifaði Van Gerwen við myndina og Rice svaraði: „Þvílíkur maður! Frábært að hitta þig félagi!"
Athugasemdir