„Það er geggjað að endurheimta Birki hingað. Þetta er frábær jólagjöf," sagði Sigurbjörn Hreiðarsson, aðstoðarþjálfari Vals, eftir að Birkir Már Sævarsson samdi við félagið í dag.
Birkir er fastamaður í íslenska landsliðinu sem fer á HM í Rússlandi næsta sumar og reikna má með að hann missi af nokkrum leikjum í Pepsi-deildinni með Vals vegna þátttöku þar.
„Það má ætla það að það gerist. Við erum með frábæran hóp og topp leikmenn í stöðuna líka. Ef það verður, þá verður það."
Íslandsmeistarar Vals hafa einnig fengið Kristin Frey Sigurðsson, Ólaf Karl Finsen og Ívar Örn Jónsson í hópinn í vetur og styrkt sig vel.
„Það er það sem við ætluðum að gera. Við erum búnir að fá toppleikmenn inn í þennan hóp og hann ætti að stuðast verulega. Vonandi náum við að halda áfram á þessari braut, spila þann fótbolta sem við viljum og verja þetta vígi," sagði Sigurbjörn en eru fleiri nýir leikmenn væntanlegir? „Það er ekkert á döfinni núna en maður lokar aldrei neinu í desember," sagði Sigurbjörn að lokum.
Hér að ofan má sjá viðtalið við Sigurbjörn í heild sinni.
Athugasemdir