Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 21. janúar 2019 12:30
Elvar Geir Magnússon
El Shaarawy fór beint í Ally Pally til að horfa á snóker
Stephan El Shaarawy.
Stephan El Shaarawy.
Mynd: Getty Images
Ítalski landsliðsmaðurinn Stephan El Shaarawy skoraði sigurmark Roma í markaleik gegn Torino um helgina. Eftir leikinn flaug hann svo til London og horfði á úrslitaleik í snóker í Alexandra Palace.

Hann var meðal áhorfenda þegar Judd Trump vann sjöfaldan meistar, Ronnie O'Sullivan, 10-4 og tryggði sér sinn fyrsta Masters sigur.

„Ég elska snóker. Ég er alltaf að horfa á snóker og þarna mættust tveir mínir uppáhalds spilarar í úrslitum," segir El Shaarawy sem mætti með bróður sínum til London.

El Shaarawy hefur skorað sex mörk í tólf leikjum fyrir Roma í ítölsku A-deildinni á þessu tímabili.


Athugasemdir
banner
banner
banner