James Milner fékk að líta rauða spjaldið undir lokin í 4-3 sigri Liverpool á Crystal Palace á laugardaginn.
Milner var rekinn út af á 89. mínútu í stöðunni 3-2 en hann fékk þá sitt annað gula spjald og þar með rautt fyrir brot á Wilfried Zaha.
Dómari leiksins var Jonathan Moss og hann sendi Milner í sturtu með rauða spjaldið.
Moss og Milner hafa þekkst lengi því 48 ára gamli Moss var kennari hans í grunnskóla.
Moss þjálfaði Milner einnig í fótboltaliði skólans á sínum tíma en gamli nemandinn fékk enga miskunn um helgina.
James Milner was sent off by Jonathan Moss yesterday, his former primary school teacher and coach.
— Transfer Talk (@EPLBible) January 20, 2019
This is amazing. pic.twitter.com/M2j8ETKNp0
Athugasemdir