Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 21. janúar 2019 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Henry ósáttur því VAR bilaði í vandræðalegu tapi
Mynd: Getty Images
Thierry Henry hefur ekki farið sérlega vel af stað með Mónakó og töpuðu hans menn 1-5 fyrir Strasbourg á heimavelli um helgina.

Mónakó var 1-2 undir þegar klukkutími var liðinn af leiknum og heimtuðu leikmenn liðsins vítaspyrnu. Henry vildi fá vítaspyrnu og bað fjórða dómarann um að notast við VAR myndbandstæknina.

„Þegar ég spurði fjórða dómarann þá sagði hann mér að VAR væri bilað. Við hefðum getað jafnað úr vítaspyrnunni, þetta hefði gjörbreytt gangi leiksins," sagði Henry.

Mónakó er í næstneðsta sæti frönsku deildarinnar, þremur stigum frá öruggu sæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner