Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 21. janúar 2019 14:30
Magnús Már Einarsson
Hudson-Odoi ætlar að hafna nýjum samningi hjá Chelsea
Mynd: Getty Images
Callum Hudson-Odoi ætlar að hafna nýju samningstilboði frá Chelsea samkvæmt frétt Sky Sports.

Chelsea er reiðbúið að bjóða Hudson-Odoi 85 þúsund pund í vikulaun.

Leikmaðurinn á eitt og hálft ár eftir af núverandi samningi og hann vill ekki gera nýjan samning við Chelsea.

Hudson-Odoi hefur komið við sögu í fjórtán leikjum í öllum keppnum á tímabilinu en hann bíður ennþá eftir fyrsta byrjunarliðsleiknum í ensku úrvalsdeildinni.

Bayern Munchen er á höttunum á eftir Hudson-Odoi en þýsku meistararnir hafa lagt fram fjögur tilboð í hann á undanförnum vikum. Síðasta tilboð Bayern hljóðaði upp á 35 milljónir punda.
Athugasemdir
banner
banner