Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 21. janúar 2019 15:15
Elvar Geir Magnússon
McTominay gerir nýjan samning við Man Utd
McTominay er búinn að gera nýjan samning.
McTominay er búinn að gera nýjan samning.
Mynd: Getty Images
Miðjumaðurinn Scott McTominay hefur skrifað undir nýjan langtímasamning við Manchester United.

Þessi 22 ára skoski landsliðsmaður kemur upp úr unglingastarfi United og er nú bundinn til 2023, með möguleika á framlengingu um ár til viðbótar.

„Hann (McTominay) er ungur strákur sem ég hef trú á. Hann hefur tekið framförum, vill læra og á bjarta framtíð," sagði Ole Gunnar Solskjær um leikmanninn.

McTominay hefur komið við sögu í sjö leikjum í ensku úrvalsdeildinni á yfirstandandi tímabili.


Athugasemdir
banner
banner
banner