Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 21. janúar 2019 18:00
Magnús Már Einarsson
Neymar: Átti erfitt með að aðlagast lífinu í París
Mynd: Getty Images
Brasilíumaðurinn Neymar hefur viðurkennt að hann hafi átt erfitt með að aðlagast lífinu í París eftir að PSG keypti hann frá Barcelona á 222 milljónir evra sumarið 2017.

Neymar segist finna sig betur í París í dag en hann skoraði tvö mörk í 9-0 sigri á Guingamp um helgina.

„Að aðlagast Ligue 1 var auðveldara en ég bjóst við. Þetta var auðvelt því þetta er líkt La Liga," sagði Neymar.

„Ég átti í smá erfiðleikum með að aðlagast lífinu í borginni og það hafði smá áhrif á mig. Núna líður mér eins og heima."

Neymar er búinn að skora þrettán mörk í jafnmörgum leikjum í frönsku úrvalsdeildinni í vetur.
Athugasemdir
banner
banner