Marco Verratti, miðjumaður PSG, er tæpur fyrir fyrri leikinn gegn Manchester United í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
Verratti meiddist á ökkla í 9-0 sigri á Guingamp um helgina og við fyrstu sýn líta meiðslin illa út
Ítalinn fer í nánari skoðun í vikunni en hann gæti misst af fyrri leiknum gegn Manchester United eftir þrjár vikur.

„Ég tel að þetta sé alvarlegt. Þetta er það versta sem hafði getað komið fyrir okkur," sagði Thomas Tuchel þjálfari PSG.
Athugasemdir