Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   lau 21. janúar 2023 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Ísland í dag - Eyjamenn í Skessunni
FH og ÍBV mætast í Skessunni
FH og ÍBV mætast í Skessunni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Átta leikir fara fram í íslenska boltanum í dag en spilað er bæði í karla- og kvennaflokki.

FH og ÍBV mætast í B-riðli Þungavigtarbikarsins. Leikurinn hefst klukkan 12:00 og fer fram í Skessunni. FH-ingar eru á toppnum með einn sigur og nægir jafntefli til að vinna riðilinn. Eyjamenn eru án stiga.

Víkingur tekur á móti KR í A-riðli Reykjavíkurmóts karla klukkan 14:00 á Víkingsvelli. Víkingur er með þrjú stig en KR á enn eftir að ná sér í stig. Þróttur R. spilar þá við KR í B-riðli Reykjavíkurmótsins í kvennaflokki. Sá leikur hefst klukkan 15:00 og fer fram í Egilshöll.

Leikir dagsins:

Þungavigtarbikarinn:
12:00 FH - ÍBV (Skessan)

Reykjavíkurmót karla - A-riðill
14:00 Víkingur R.-KR (Víkingsvöllur)

Reykjavíkurmót kvenna - B-riðill
15:00 Þróttur R.-KR (Egilshöll)

Kjarnafæðismótið - Kvenna
18:00 FHL-Tindastóll (Greifavöllurinn)
19:00 Þór/KA 2-Völsungur (Boginn)

Kjarnafæðismótið - Karla: A-deild, riðill 1
15:00 KA-Dalvík/Reynir (Boginn)
17:00 Tindastóll-Völsungur (Boginn)

Kjarnafæðismótið - Karla: A-deild, riðill 2
13:00 KF-KA 2 (Boginn)
Athugasemdir
banner