Kristrún Rut Antonsdóttir gekk í raðir Sankt Pölten í janúar og er austurríska tímabilið farið aftur af stað eftir langa vetrarpásu.
St. Pölten tók á móti Altenmarkt í gær og vann þægilegan 4-1 sigur.
Þetta var ellefti sigur liðsins í röð í deildinni þar sem liðið er með fullt hús stiga, 33 stig eftir 11 umferðir.
Kristrún Rut lék síðasta stundarfjórðunginn í sigrinum í gær.
St. Pölten var í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar en var slegið út af Glódísi Perlu Viggósdóttur og stöllum í Rosengård.
St. Pölten 4 - 1 Altenmarkt
Athugasemdir