sun 28. apríl 2019 16:27
Fótbolti.net
Draumaliðsdeild Toyota opin - Glæsileg verðlaun
Pepsi Max-deild kvenna hefst 2. maí.
Pepsi Max-deild kvenna hefst 2. maí.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Búið er að opna fyrir skráningar í Draumaliðsdeild Toyota sem verður í tengslum við Pepsi Max-deild kvenna í sumar. Þetta er annað árið í röð sem Toyta styrkir Draumaliðsdeild kvenna.

Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!

Leikurinn í stuttu máli
Þú færð 100 milljónir króna til að kaupa 15 leikmenn úr Pepsi-deildinni. Leikmennirnir fá síðan stig fyrir frammistöðu sína á vellinum en mörg atriði eru tekin inn í reikninginn í stigagjöfinni.

Á síðunni er einnig boðið upp á sérstakar einkadeildir þar sem hægt er að keppa við vini og félaga og bera saman árangurinn.

Aðalverðlaunin eru glæsileg en Toyota gefur ferð fyrir tvo á leik í enska boltanum með Vita ferðum.

Athugið að ekki hægt er að nota sama notendanafn og í fyrra. Fólk þarf að skrá sig upp á nýtt í ár.

Taktu þátt og sýndu snilli þína í að velja lið, þátttaka er að sjálfsögðu ókeypis!

Fyrsta umferðin í Pepsi-deild kvenna hefst á fimmtudag en þann dag lokar markaðurinn. Skráðu þitt lið til leiks í tæka tíð!

Á síðunni er einnig boðið upp á sérstakar einkadeildir þar sem hægt er að keppa við vini og félaga og bera saman árangurinn.

Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner