Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 21. apríl 2019 07:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
„Ég vil spila með David Silva"
Cengiz Under leikmaður Roma.
Cengiz Under leikmaður Roma.
Mynd: Getty Images
Tyrkinn ungi Cengiz Under sem leikur með Roma á Ítalíu er mikill aðdáandi Spánverjans David Silva sem leikur með Manchester City.

„Ég hef alltaf haft gaman að því að fylgjast með þeim bestu," sagði Cengiz Under.„Maður þarf alltaf að vera gagnrýninn á sjálfan sig því þá nær maður frekar að bæta sig, ég horfi alltaf á myndband eftir leikina sem ég spila til að skoða eigin frammistöðu."

„Það er einn leikmaður sem er í sérstöku uppáhaldi hjá mér, það er David Silva. Ég horfi oft á myndbönd af honum spila, það er ótrúlega skemmtilegt að fylgjast með því hvernig hann spilar."

„Ég elska að fylgjast með honum svo ég vona að við munum spila saman einn daginn," sagði þessi 21 árs gamli Tyrki sem hefur skorað 10 mörk í 43 deildarleikjum fyrir Roma.
Athugasemdir
banner
banner