Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 21. apríl 2019 20:25
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Einkunnir Arsenal og Crystal Palace: Kelly maður leiksins - Mustafi þristaður
Mynd: Getty Images
Crystal Palace vann öflugan 2-3 sigur á Arsenal á Emirates vellinum í dag.

Christian Benteke kom gestunum á bragðið áður en Mesut Özil jafnaði leikinn á 47. mínútu. Wilfried Zaha kom gestunum aftur yfir og James McArthur kom liðinu í 1-3 á 69. mínútu. Þegar um stundarfjórðungur lifði leiks skoraði Pierre-Emerick Aubameyang lokamark leiksins fyrir Arsenal.

Hér að neðan eru einkunnir leikmanna. Þar er helst að Shkodran Mustafi fékk þrjá í einkunn.

Unai Emery reyndi að verja sinn mann í viðtali eftir leik.

„Hann getur spilað mjög vel. Ég vil heldur tala um stöðugleika hans á tímabilinu," sagði Emery um Mustafi eftir leik.

„Við hjálpuðum þeim að eiga góðan dag og þá er erfitt að verjast þeim. Heilt á litið finnst mér Mustafi hafa sýnt stöðugleika."

Einkunnir leikmanna

Arsenal: Leno (6), Koscielny (6), Mustafi (3), Mavropanos (6), Jenkinson (5) Guendouzi (6), Elneny (6), Kolasinac (6), Ozil (6), Aubameyang (7), Lacazette (6)

Varamenn: Iwobi (6), Maitland-Niles (7), Torreira (6)

Crystal Palace: Guaita (7), Wan-Bissaka (8),Dann (8), Kelly (9), Ward (7), Kouyate (7), McArthur (7), Milivojevic (8), Meyer (7), Zaha (8), Benteke (7)


Maður Leiksins: Martin Kelly

Athugasemdir
banner
banner
banner