Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 21. apríl 2019 05:55
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
England í dag - Kemst Liverpool aftur á toppinn? - Man Utd mætir Everton
Mynd: Getty Images
Það eru þrír flottir leikir á dagskrá ensku úrvalsdeildarinnar í dag.

Fyrsti leikur dagsins hefst klukkan 12:30, þá taka Gylfi Þór Sigurðsson og félagar hans í Everton á móti Manchester United sem er í harðri baráttu um Meistaradeildarsæti. Everton tapaði 2-0 gegn Fulham síðustu helgi en Manchester United vann nauman sigur á West Ham.

Klukkan 15:00 mætast Lundúnaliðin Arsenal og Crystal Palace á Emirates leikvangnum. Arsenal þarf nauðsynlega á þremur stigum að halda í Meistaradeildarbaráttunni. Crystal Palace er með 39 stig, 8 stigum frá fallsæti.

Eftir sigur Manchester City á Tottenham í gær þarf Liverpool á þremur stigum að halda í dag til að komast aftur á toppinn, þeir heimsækja Aron Einar Gunnarsson og félaga hans í Cardiff í dag sem eru í fallbaráttu. Flautað verður til leiks klukkan 15:00.

Sunnudagur 21. apríl.
12:30 Everton - Manchester United (Stöð 2 Sport)
15:00 Arsenal - Crystal Palace
15:00 Cardiff - Liverpool (Stöð 2 Sport)
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 33 23 5 5 77 26 +51 74
2 Liverpool 33 22 8 3 75 32 +43 74
3 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Newcastle 32 15 5 12 69 52 +17 50
7 Man Utd 32 15 5 12 47 48 -1 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 31 13 8 10 61 52 +9 47
10 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
11 Wolves 33 12 7 14 46 53 -7 43
12 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
13 Bournemouth 33 11 9 13 48 60 -12 42
14 Crystal Palace 33 9 9 15 42 56 -14 36
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 33 10 8 15 34 48 -14 30
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 33 3 7 23 31 88 -57 16
Athugasemdir
banner
banner
banner