Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 21. apríl 2019 15:40
Arnar Helgi Magnússon
Gylfi valinn maður leiksins af Sky og BBC
Mynd: Getty Images
Gylfi Þór Sigurðsson var valinn maður leiksins af Sky og BBC eftir frammistöðu sína gegn Manchester United í ensku úrvalsdeildinni fyrr í dag.

Gylfi skoraði stórkostlegt mark af löngu færi áður en að hann lagði upp annað fyrir Theo Walcott.

Gylfi snerti boltann 54 sinnum í leiknum, átti 32 sendingar og 11 fyrirgjafir. Hann skapaði fjögur færi og úr einu þeirra varð mark. Hann átti tvær skottilraunir og önnur þeirra endaði í markinu.

Íslenski landsliðsmaðurinn er nú kominn með þrettán mörk í deildinni og fimm stoðsendingar.

Næsti leikur Everton er gegn Crystal Palace um næstu helgi.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner