Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 21. apríl 2019 07:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Icardi ætlar sér að vera áfram hjá Inter
Icardi og eiginkona hans Wanda Nara.
Icardi og eiginkona hans Wanda Nara.
Mynd: Getty Images
Argentínumaðurinn Mauro Icardi hefur verið orðaður við brottför frá Inter til Real Madrid en umboðsmaður hans og eiginkona Wanda Nara segir að hann ætli sér að vera áfram á Ítalíu.

„Mauro (Icardi) heldur bara áfram að bæta sig, ástæðan fyrir því að hann hefur náð svona langt er að hann hefur alltaf verið með gott hugafar," sagði Nara.

„Hann er ánægður hérna og við munum vera áfram hjá Inter á næsta tímabili."

Icardi sem eins og fyrr segir hefur verið orðaður við Real Madrid að undanförnu er búinn að skora 10 deildarmörk á tímabilinu í 23 leikjum, hann hefur leikið með Inter frá árinu 2013.


Athugasemdir
banner
banner