Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   sun 21. apríl 2019 13:25
Arnar Helgi Magnússon
Þýskaland: Guðlaugur Victor lék í markalausu jafntefli
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðlaugur Victor Pálsson var á sínum stað í byrjunarliði Darmstad þegar liðið fékk Bochum í heimsókn í þýsku annarri deildinni í dag.

Leikurinn var tíðindalítill og honum lauk með markalausu jafntefli.

Átján lið eru í deildinni og er Darmstad í tólfta sætinu þegar örfáar umferðir eru eftir. Bochum er í níunda sæti með tveimur fleiri stig en Darmstad.

Næsti leikur liðsins er gegn efsta liðinu, Köln. Sá leikur fer fram þann 26. apríl. Tölfræðilega er Darmstad ekki sloppið frá falli þó að það verði að teljast ansi ólíklegt að liðið fari niður.

Guðlaugur Victor spilaði allan leikinn í dag.
Athugasemdir
banner
banner
banner