Í fótboltalausa tímabilinu er um að gera að rifja upp gamalt og gott mark.
Í dag förum við aftur til ársins 1998 og skoðum mark sem Roberto Carlos skoraði í bikarleik gegn Tenerife.
Brasilíski vinstri bakvörðurinn skoraði mörg stórbrotinn mörk á ferli sínum og þetta er eitt af þeim.
Carlos skoraði með skoti á lofti nánast frá endalínu vallarins og boltinn fór í fjærhornið framhjá varnarlausum markverði Tenerife eins og sjá má hér að neðan.
Ef þú átt hugmynd að góðu marki til að rifja upp sendu þá tölvupóst á [email protected]
Eldra efni í „gamla markið"
Athugasemdir